mánudagur, október 03, 2005

Fyndin helgi

Fór í partíið til Svenna á föstudaginn og ætlaði síðan á laugardeginum að henda mér til Möggu og Friðlínar.. ákvað samt af rælni að tékka hvenær það væri mæting og þá kemur það uppúr kafinu að þær voru ekkert búnar að plana þetta heldur buðu bara 10þ manns í þetta partí á fylleríinu í kringum árshátiðina hahahaha!!!

Þannig að ég bauð bara í pottapartí um nóttina og svaka stuð í kringum það þó svo að ég viti ekki alveg hversu hress Andri meðleigjandi minn hefur verið með þetta uppistand allt.. held samt að það hafi ekki verið nein læti í okkur en samt, vorum útá svölunum í pottinum þannig að nágranninn fyrir ofan hefur ekki verið sáttur, get ég ímyndað mér, þar sem svefnherbergið hans er beint fyrir ofan pottinn okkar..
 

blogger templates |