miðvikudagur, október 05, 2005

Alveg merkilegur listamaður

Hann Jón BónJóví er sko einn sá allra merkilegasti sem ég hef heyrt í í langan tíma..

Ég hélt reyndar að hann væri að gefa út svona "Bestof" disk þegar ég heyrði auglýsinguna fyrst, svo heyrði ég hana oftar og oftar og þá fattaði ég að þetta var sama lag og hann gerði frægt hér á síðustu öld, "It´s mæ læf!" nema kallinn er líklega búinn með öll stefgjöldin sem hann fékk fyrir það, nennti greinilega ekki að byrja frá grunni þannig að hann lét nægja að breyta textanum aðeins!

HAHAHA, ekki erfitt líf að vera listamaðurinn Jón BónJóví, það er nokkuð ljóst! Hann var ss að gefa út disk í samstarfi við Sorpu og Endurvinnsluna.. kannski ekki við öðru að búast frá svona "lista"-manni..
 

blogger templates |