þriðjudagur, október 11, 2005

Italien ein Peninzula ist


Eða penesilín öllu heldur.. vona bara að það rífi þetta djös kjaftæði endanlega úr manni, var veikur fyrir rúmri viku síðan með nákvæmlega það sama og núna nema þetta er kannski aðeins meira extreme núna, enda hálsinn á mér með 2 risastór kýli sitt hvoru megin við barkann og bullandi hiti, eyrnabólga og fáráááánleg hálsbólga sem fylgir þessum blessuðu bólgnu kirtlum! Eftir að sýklalyfin fóru að kikka inn þá hjaðnaði þetta nú aðeins og ég fór að geta kyngt án þess að tárast.. allt til batnaðar.. paratabsið er líka að þræl slá á hitann.. Erna, á ég að láta rífa þetta heeelvíti úr mér? Skynja vel sársaukann sem þú upplifðir þegar þú fórst í gegnum kirtlatökuna!

Annars held ég að þessi greinabirting í Fréttablaðinu hafi komið aðeins of seint, ég meina, Clintarinn er friggin farinn af landiu brott! Demit!! Ekki fær hann blaðið sent út, efast um það sko.. þannig að frægðin og framinn verður bara að bíða betri tíma.

Blænd deit? Hefur einvher hér prufað það? Þá meina ég án þess að vita nokkur deili á viðkomandi nema kannski að hún/hann sé kunningi vinar manns? Ég er ekki alveg viss hvort að ég myndi leggja í það, ef þetta sökkar alveg, væri maður þá að gera báðum greiða með því að slútta því snemma eða á maður að vera kurteis og leyfa hinum aðilanum að segja til um hvenær þessu lýkur? Hvað ef það misskilst og .. úff það er svo margt í þessu.. ég veit ekki, bara hreint veit ekki..
 

blogger templates |