mánudagur, desember 12, 2005

Sprungin vör

Var á leið í kaffi í góðum fílingi áðan, ég og einn smiðurinn höfum orð á því að við nennum ekki að taka nema 2 stóla af borðinu, hinir sem koma seinna geti bara séð um sig sjálfir og byrjum að maula kökurnar okkar.. í því kemur einn verkstjórinn aðvífandi, bölvar okkur fyrir það hvað við erum latir og fer í það af krafti að rífa stólana niður.

..og rekur einn í andlitið á mér og sprengir svona fallega neðri vörina hjá mér..

Mjög hressandi! En hann gerði þetta náttlega alveg óvart, samt súrt að vera með sprungna vör..
 

blogger templates |