miðvikudagur, desember 21, 2005

Sjarmatröllið ég

Jæja, það hlaut að koma að því fyrr eða seinna, ég er kominn með 15 grá hár í skeggið! En það er auðvitað eins og allir vita ekkert nema ofurtöff að vera nett grásprengdur og eykur bara enn á sjarmann hjá manni :D

..það er reyndar mjög líklegt að ég sé sá eini sem taki eftir þeim, nema ég bendi fólki sérstaklega á þau þannig að ég verð víst að bíða í nokkur ár í viðbót með að verða tvífari Sean ´Skúla´ Connery´s, eins og hann er nú gjarnan kallaður..
 

blogger templates |