miðvikudagur, janúar 12, 2005

Alltaf eitthvað að gerast

Þetta er ferlegt.. það hlaðast á mann partí þegar maður ætlar að slaka á og gera ekkert!

En sem betur fer eru þetta nu yfirleitt partí í góðra vina hóp þó svo að hitt kynið sé sjaldnast í meirihluta og þær sem eru á svæðinu svo harðgiftar að þær hugsa ekki einusinni um vini makans, t.d. með því að kippa nokkrum lauslátum vinkonum með til að dreifa á liðið! össs

Matarboðið hjá Dodda á föstudaginn getur bara ekki klikkað enda komin heilmikil reynsla á að djamma þar og Árni vinnufélagi búinn að testa alla sófana í húsinu hvað svefneiginleika varðar!

Hmmm... ég er að horfa á skjá einn og þetta nonstopp tónlistardæmi.. Ashlee Simpson er fokking dökkhærð útgáfa af bríttnej spírs! Hef reyndar ekki grænan grun um það hver þessi Ashlee er en hélt að bríttnej hefði snúið blaðinu við og skellt sér í harðari tónlist en hún er vön. shit ég fylltist virkilega von um að hún gæti bara verið soldið töff! eeen það var audda ekki þannig, að sjálfsögðu ekki..

hahaha, og núna er einhver sú óþekktasta hljómsveti sem ég hef nokkurntíman aldrei heyrt um að syngja um það að "they just wanna live!" og lagið gengur útá paparatsíar eru að leggja þá í einelti! haha

Annars held ég að það sé farið að koma tími á að útbúa nýtt vídeó fyrir Bigga á 5aurinn.. verst að Bunker er hættur..
.
 

blogger templates |